Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 4. maí 2018

643/2016

Reglugerð um ráðstöfun og meðferð aflaheimilda samkvæmt 10. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

1. gr. Gildissvið - Val á byggðarlögum.

Byggðastofnun hefur til ráðstöfunar aflaheimildir, sem ráðherra ákvarðar samkvæmt heimild í 5. mgr. 8. gr. laga nr. 116/2006, til að styðja byggðarlög í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi sbr 10. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

Val á byggðarlögum sem koma til álita skal byggja á eftirfarandi þáttum:

Byggðarlag sé í alvarlegum og bráðum vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi.
Íbúar byggðarlags séu færri en 400.
Íbúum hafi fækkað síðastliðin 10 ár.
Akstursfjarlægð frá byggðarlagi til byggðakjarna sem telur meira en 1.000 íbúa sé a.m.k. 20 km.
Byggðakjarninn tilheyri vinnusóknarsvæði sem telur færri en 10.000 íbúa.
Hlutfall starfa við veiðar og vinnslu í sjávarbyggðinni sé a.m.k. 20% allra starfa.
Að aflamark Byggðastofnunar skipti verulegu máli fyrir framtíð byggðarlagsins að mati stjórnar Byggðastofnunar.

Stjórn Byggðastofnunar tekur ákvörðun um endanlegt val byggðarlaga á grundvelli greiningar Byggðastofnunar á stöðu byggðarlaga og innkominna umsókna um samstarf við viðkomandi sveitarfélög.

2. gr. Skipting aflamarks.

Skipting þess aflamarks sem kemur í hlut byggðarlags samkvæmt reglum þessum skal fara fram á grundvelli samninga Byggðastofnunar, fiskvinnslu og útgerðaraðila. Við mat umsókna frá einstökum byggðarlögum verður byggt á eftirfarandi atriðum:

Trúverðugum áformum um útgerð, vinnslu sjávarafurða eða aðra starfsemi.
Fjölda heilsársstarfa fyrir karla og konur sem skapast eða verður viðhaldið.
Sem bestri nýtingu þeirra aflaheimilda sem fyrir eru í byggðarlaginu.
Öflugri starfsemi til lengri tíma sem dregur sem mest úr óvissu um framtíðina.
Jákvæðum áhrifum á atvinnulíf og samfélag.
Traustri rekstrarsögu forsvarsmanna umsækjenda.

Byggðastofnun ákveður tímalengd samninga um nýtingu aflaheimilda skv. reglum þessum, sem skal þó ekki vera lengri en til sex ára.

3. gr. Skilyrði fyrir úthlutun aflamarks.

Eingöngu er heimilt að ráðstafa aflamarki til fiskiskipa sem hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni, sbr. 4. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, þegar úthlutun aflamarks á sér stað.

4. gr. Umsóknarferli.

Byggðastofnun annast úthlutun aflamarks, sem kemur í hlut einstakra byggðarlaga, og skal auglýsa eftir umsóknum í a.m.k. tveimur dagblöðum og á vefsíðu Byggðastofnunar: www.byggðastofnun.is. Í umsóknum skulu koma fram upplýsingar sem Byggðastofnun ákveður og skal umsóknum skilað á formi sem stofnunin ákveður. Umsóknarfrestur skal vera minnst tvær vikur. Byggðastofnun annast mat og úrvinnslu umsókna og skal svara öllum umsóknum svo fljótt sem unnt er.

5. gr. Úthlutun aflamarks.

Byggðastofnun skal úthluta aflamarki með tilkynningu til Fiskistofu um magn á skip, á grundvelli samninga fyrir fiskveiðiárið enda séu skilyrði samningsins uppfyllt. Hafi skilyrði fyrir úthlutun aflamarks til einstakra fiskiskipa á grundvelli reglugerðar þessarar ekki verið uppfyllt að fullu í lok fiskveiðiárs fellur niður réttur til aflamarks í hlutfalli við það sem upp á vantar að skilyrði séu uppfyllt. Takist ekki að úthluta öllu aflamarki viðkomandi skips fyrir lok fiskveiðiársins er heimilt að ráðstafa áunnu aflamarki yfirstandandi fiskveiðiárs til næsta fiskveiðiárs, enda hafi viðkomandi skip verið í samfelldri eigu viðkomandi útgerðar og ekki verið flutt meira aflamark frá skipinu en til þess í lok fiskveiðiársins á undan.

6. gr. Samráð við sveitarstjórn.

Byggðastofnun skal hafa samráð við sveitarstjórn viðkomandi sveitarfélags áður en tillögur um samningsaðila eru lagðar fyrir stjórn Byggðastofnunar til endanlegrar afgreiðslu.

7. gr. Vinnsla afla.

Fiskiskipum er skylt að landa þeim afla sem telja á til aflamarks Byggðastofnunar til vinnslu innan hlutaðeigandi vinnusóknarsvæða á viðkomandi fiskveiðiári og í samræmi við samning sem liggur til grundvallar úthlutun. Með vinnslu er átt við flökun, flatningu, frystingu, söltun eða herslu samkvæmt nánari lýsingu í samningi.

8. gr. Framsal aflamarks.

Framsal aflamarks sem úthlutað er samkvæmt reglum þessum er óheimilt, en þó skulu heimil jöfn skipti á aflamarki í þorskígildum talið. Aflamarki Byggðastofnunar er m.a. ætlað að stuðla að sem bestri nýtingu þeirra aflaheimilda sem fyrir eru í byggðarlaginu. Því er heimilt í samningi skv. 2. gr. að kveða á um bann við leigu eða sölu aflaheimilda frá aðilum samningsins á samningstímanum.

9. gr. Eftirlit með samningum.

Eftirlit með framkvæmd þessara reglna skal vera í höndum Byggðastofnunar í samráði við viðkomandi sveitarstjórn og atvinnuþróunarfélag. Sé það mat þessara aðila að um alvarleg frávik sé að ræða frá ákvæðum samningsins, getur Byggðastofnun rift honum einhliða hvenær sem er á samningstímanum.

10. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett skv. 10. gr. a laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og öðlast gildi 1. september 2016. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 606/2015, um ráðstöfun og meðferð aflaheimilda skv. ákvæði til bráðabirgða XIII í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.