Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

582/2016

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 284/2016, um stjórn makrílveiða íslenskra fiskiskipa árið 2016. - Brottfallin

1. gr.

"10%" í 3. tölul. 4. gr. reglugerðarinnar verður: 20%.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. júní 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica