Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

500/2016

Reglugerð um bann við veiðum á sæbjúgum á veiðisvæði úti fyrir Austurlandi. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 10. júní 2016 eru allar veiðar á sæbjúgum óheimilar á veiðisvæði úti fyrir Austurlandi, á svæði sem markast af línum sem dregnar eru milli eftirgreindra punkta:

          1. 65°05,40ˊ N - 13°21,00ˊ V
          2. 65°05,40ˊ N - 13°33,00ˊ V
          3. 64°43,20ˊ N - 13°53,40ˊ V
          4. 64°43,20ˊ N - 13°41,40ˊ V
          5. 65°05,40ˊ N - 13°21,00ˊ V

2. gr.

Með mál sem kunna að rísa út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti sakamála og varða brot viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. júní 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica