Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 21. feb. 2018

346/2016

Reglugerð um gildistöku framseldrar reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1254/2014 frá 11. júlí 2014, um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar loftræstieininga fyrir íbúðarhúsnæði.

1. gr.

Eftirtalin reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 4o og 11o í kafla IV í II. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 308/2015, frá 11. desember 2015, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1254/2014 frá 11. júlí 2014 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2010/30/ESB að því er varðar orkumerkingar loftræstieininga fyrir íbúðarhúsnæði.

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir liðum 4c, 4e, 4i, 4j, 4k, 4l, 4m, 4n, 4s, 4t, 4o, 4p, 4q, 4r og 4u í kafla IV í II. viðauka og eftir liðum 11c, 11e, 11i, 11j, 11k, 11l, 11m, 11n, 11s, 11t, 11o, 11p, 11q, 11r og 11u í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 197/2017, frá 27. október 2017, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) og IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af IV. kafla II. viðauka og IV. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/254 frá 30. nóvember 2016 um breytingu á reglugerðum framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1059/2010, (ESB) nr. 1060/2010, (ESB) nr. 1061/2010, (ESB) nr. 1062/2010, (ESB) nr. 626/2011, (ESB) nr. 392/2012, (ESB) nr. 874/2012, (ESB) nr. 1015/2010, (ESB) nr. 1016/2010, (ESB) nr. 327/2011, (ESB) nr. 206/2012, (ESB) nr. 665/2013, (ESB) nr. 811/2013, (ESB) nr. 812/2013, (ESB) nr. 65/2014, (ESB) nr. 1254/2014, (ESB) 2015/1094, (ESB) 2015/1186 og (ESB) 2015/1187 að því er varðar beitingu vikmarka í sannprófunaraðferðum.

2. gr.

Framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1254/2014 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 19/2016, 31. mars 2016, bls. 21.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2017/254 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 74/2017, 16. nóvember 2017, bls. 45.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 13. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi vörur sem tengjast orkunotkun, öðlast þegar gildi.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.