Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

237/2016

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 202/2016, um hrognkelsaveiðar 2016. - Brottfallin

1. gr.

3. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Veiðisvæði og veiðitímabil.

Grásleppuveiðileyfi hvers báts skal gefið út til 20 samfelldra daga í upphafi, þar til ákvörðun um heildarfjölda daga hefur verið tekin og skal bundið við ákveðið veiðisvæði og veiðitímabil eins og hér greinir:

  1. Faxaflói, frá línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita 64°04,90´ N 022°41,40´ V að línu rétt­vísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00´ N 023°55,30´ V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 14. júní.
  2. Breiðafjörður, svæði 1 frá línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00´ N 023°55,30´ V að línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum 65°30,20´ N 024°32,10´ V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 14. júní.
    Breiðafjörður, svæði 2 innan línu sem dregin er úr Krossnesvita vestan Grundarfjarðar 64°58,30´ N 023°21,40´ V í Lambanes vestan Vatnsfjarðar 65°29,30´ N 023°12,60´ V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 20. maí til og með 2. ágúst.
  3. Vestfirðir, frá línu réttvísandi vestur frá Bjargtöngum 65°30,20´ N 024°32,10´ V að línu rétt­vísandi norður frá Horni (grunnpunktur 1) 66°27,40´ N 022°24,30´ V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 1. apríl til og með 14. júní.
  4. Húnaflói, frá línu réttvísandi norður frá Horni (grunnpunktur 1) 66°27,40´ N 022°24,30´ V að línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20´ N 020°05,90´ V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 26. mars til og með 8. júní.
  5. Norðurland, frá línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20´ N 020°05,90´ V að línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi (grunnpunktur 9) 66°22,70´ N 014°31,90´ V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 26. mars til og með 8. júní.
  6. Austurland, frá línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi (grunnpunktur 9) 66°22,70´ N 014°31,90´ V að línu réttvísandi austur frá Hvítingum (grunnpunktur 18) 64°23,90´ N 014°28,00´ V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 26. mars til og með 8. júní.
  7. Suðurland, frá línu réttvísandi austur frá Hvítingum (grunnpunktur 18) 64°23,90´ N 014°28,00´ V að línu réttvísandi vestur frá Garðskagavita 64°04,90´ N 022°41,40´ V.
    Innan veiðitímabilsins frá og með 26. mars til og með 8. júní.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerðin tekur þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 17. mars 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica