Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

171/2016

Reglugerð um breytingu á reglugerð um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 585/2007. - Brottfallin

1. gr.

1. málsl. b-liðar 2. mgr. 18. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Hafa ekki gerst sekir um ofbeldis- eða fíkniefnabrot á síðastliðnum fimm árum.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 25. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, nr. 585/2007, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Á sama tíma fellur úr gildi breytingarreglugerð nr. 1079/2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. febrúar 2016.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

Brynhildur Pálmarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica