Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

43/2016

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 958/2015 um loðnuveiðar færeyskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2015/2016. - Brottfallin

1. gr.

5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Færeyskum skipum er heimilt að stunda loðnuveiðar með flotvörpu innan svæðis sem afmarkast af línum sem dregnar eru milli eftirfarandi punkta:

          1. 67° 11´ N – 014° 30´ V
          2. 68° 00´ N – 014° 30´ V
          3. 68° 00´ N – 008° 30´ V
          4. 65° 15´ N – 008° 30´ V
          5. 65° 15´ N – 011° 20´ V
          6. 66° 05´ N – 011° 30´ V
          7. 66° 15´ N – 012° 00´ V
          8. 66° 12´ N – 012° 22´ V
          9. 66° 40´ N – 012° 40´ V
          10. 66° 47´ N – 013° 00´ V
          11. 66° 52´ N – 013° 08´ V
          12. 67° 11´ N – 014° 30´ V

Verði aðgangur færeyskra skipa að fiskveiðilandhelgi Íslands takmarkaður, vegna nauðsynlegs skipulags á veiðum, er óheimilt að hefja veiðar í fiskveiðilandhelginni nema fyrir liggi staðfesting frá Landhelgisgæslu Íslands um að fjöldi skipa sé innan tilskilinna marka.

Ef fjöldi skipa er takmarkaður skv. 2. mgr. skulu ekki vera fleiri loðnuveiðiskip í fiskveiðilandhelgi Íslands hverju sinni en þau sem hafa hlotið staðfestingu frá Landhelgisgæslunni, sbr. þó 12. gr.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. janúar 2016.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica