Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1186/2015

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 113/2015 um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum árið 2015.

1. gr.

2. málsl. 3. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Þá er heimilt að flytja allt að 12% af ónýttu aflamarki fiskiskips frá árinu 2015 til ársins 2016.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi 28. desember 2015.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 18. desember 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Baldur P. Erlingsson.

Hinrik Greipsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica