1. gr.
Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt sérstökum samningi milli Íslands og Noregs um viðskipti með landbúnaðarvörur, samkvæmt 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993 og 12. gr. tollalaga nr. 88/2005. Reglugerð þessi gildir um innflutning á smurosti frá Noregi og með upprunavottorð þaðan.
2. gr.
Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:
Vara | Tímabil | Vörumagn | Verðtollur | Magntollur | |
Úr tollskrárnr.: | kg | % | kr./kg | ||
0406.3000 | Smurostur | 01.01. - 31.12.16 | 13.000 | 0 | 0 |
Tímabil það sem tilgreint er miðast við tollafgreiðslu en ekki við komu flutningsfars til landsins og skal tollafgreiðslu lokið innan tímabilsins.
3. gr.
Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar. Heimilt er að úthluta tollkvótum í einu lagi eða skipta úthlutun niður á gildistíma reglugerðarinnar. Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt.
Úthlutun skv. 1. mgr. er ekki framseljanleg.
Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012, um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins, með síðari breytingum.
4. gr.
Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. búvörulaga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.
5. gr.
Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. B búvörulaga nr. 99/1993, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 31. desember 2016.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 8. desember 2015.
F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Ólafur Friðriksson.
Baldur Sigmundsson.