Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

604/2015

Reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2015/2016. - Brottfallin

1. gr.

Heildaraflaheimildir.

Á fiskveiðiárinu 2015/2016 skal sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra úthluta aflamarki sem nemur allt að 5.662 þorskígildislestum af botnfiski og ráðstafa til stuðnings byggðar­lögum, þannig:

  1. Til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.
  2. Til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í byggðarlögunum. Heimilt er að ráðstafa aflaheimildum samkvæmt þessum lið til allt að þriggja ára í senn.

Byggðarlög samkvæmt 1. mgr. eru byggðakjarnar sem liggja að sjó og eru háðir veiðum og/eða vinnslu á sjávarafla. Minni byggðarlög teljast byggðarlög með færri íbúum en 2.000, miðað við 1. janúar 2015.

2. gr.

Skipting aflaheimilda eftir botnfisktegundum.

Aflaheimildir samkvæmt 1. gr. skiptast milli tegunda í hlutfalli við leyfilegt heildarmagn í þorski, ýsu, ufsa og steinbít, áður en honum er skipt á grundvelli aflahlutdeilda.

3. gr.

Úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga.

Við úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga skal miðað við að allt að 5.662 þorskígildislestum sé ráðstafað til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.

Þá skal miðað við að allt að 1.000 þorskígildislestum sé ráðstafað til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa, sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim.

Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. skal við útreikning á hlut hvers byggðarlags sá kostur ávallt valinn fyrir hvert byggðarlag sem gefur því mestar aflaheimildir samkvæmt útreikningi 4. gr. A eða samtölu 4. gr. B og C.

4. gr.

Útreikningur á aflaheimildum til byggðarlaga.

Við útreikning á hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags skal leggja til grundvallar eftirfarandi forsendur:

  1. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir samkvæmt 1. mgr. 3. gr. koma í hlut hvers byggðarlags þar sem íbúar eru færri en 2.000 þann 1. janúar 2015. Við þann útreikning skal gefa hverju byggðarlagi punkta sem fundnir eru þannig:
    1. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskafli fiskiskipa hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2005/2006 að telja til fiskveiðiársins 2014/2015, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2015, skal gefa tvo punkta.
    2. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskaflaheimildir fiskiskipa frá byggðarlagi hafa mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2005/2006 að telja til fiskveiðársins 2015/2016, sem hlutfall af heildarbotnfiskaflaheimildum allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2015, skal gefa tvo punkta.
    3. Fyrir hvert 0,1% sem vinnsla botnfiskafla í byggðarlagi hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2005/2006 að telja til fiskveiðiársins 2014/2015, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla sem unninn hefur verið í öllum byggðar­lögum með færri en 2.000 íbúa þann 1. janúar 2015, skal gefa fjóra punkta.
    Ráðuneytið metur hvaða viðmiðunarár er hagstæðast hverju byggðarlagi til útreikn­ings aflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð og leggur þar til grundvallar tölu­legar upplýsingar frá Fiskistofu. Sama fiskveiðiárið skal ávallt lagt til grundvallar við mat á öllum þáttum fyrir hvert byggðarlag, sbr. 1.-3. tl. 1. mgr., og hafi aukning orðið í einum þætti milli viðmiðunarára kemur hún til frádráttar. Samanlagðir punktar vegna samdráttar í einstökum byggðarlögum ráða því hversu mikið af aflaheimildum kemur í þeirra hlut samkvæmt þessari grein en skulu þó að lágmarki vera 15 þorskígildislestir og að hámarki 300 þorskígildislestir. Komi í ljós veruleg breyting á reiknuðum afla­heimildum samkvæmt þessari grein skal ráðuneytið kanna, hvort raunverulegar breytingar hafi orðið á útgerð eða botnfiskvinnslu í viðkomandi byggðar­lagi. Hafi svo ekki orðið er heimilt að halda úthlutuðum aflaheimildum sam­kvæmt þessari grein óbreyttum frá úthlutun fiskveiðiárið 2014/2015.
  2. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags samkvæmt 2. mgr. 3. gr. Við þann útreikning skal leggja eftirfarandi forsendur til grundvallar:
    Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á rækju, sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildislestir eða minni frá fiskveiðiárinu 2005/2006, 2006/2007, 2007/2008, 2008/2009, 2009/2010, 2010/2011, 2011/2012, 2012/2013 eða 2013/2014 að telja til fiskveiðiársins 2014/2015 koma aflaheimildir, sem nema 70 þorskígildislestum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildislestir en minni en 1.500 þorskígildislestir í byggðarlagi koma 140 þorskígildislestir í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildislestir eða meiri í byggðarlagi koma 210 þorskígildislestir í þess hlut.
  3. Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á skel (hörpudisk og/eða kúfskel), sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildislestir eða minni frá fiskveiðiárinu 2005/2006, 2006/2007, 2007/2008, 2008/2009, 2009/2010, 2010/2011, 2011/2012, 2012/2013 eða 2013/2014 að telja til fiskveiðiársins 2014/2015 koma aflaheimildir, sem nema 70 þorsk­ígildis­lestum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorsk­ígildis­lestir en minni en 1.500 þorskígildislestir í byggðarlagi koma 140 þorsk­ígildis­lestir í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorsk­ígildislestir eða meiri í byggðarlagi koma 210 þorskígildislestir í þess hlut.
    Nú sýna útreikningar að aflaheimildir koma einnig í hlut tiltekins byggðarlags sam­kvæmt A-lið þessarar greinar og skal þá einungis úthluta aflaheimildum til byggðar­lags á grundvelli þess ákvæðis sem meira gefur, þ.e. A-liðar eða samtölu B- og C- liðar.
  4. Þegar reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga samkvæmt A-lið hér að ofan, skal hlutur byggðarlaga með færri íbúa en 400 og sem úthlutað var afla­heimildum á fiskveiðiárinu 2014/2015, og eiga rétt til úthlutunar fiskveiðiárið 2015/2016, leiðréttur þannig að ekkert þeirra lækki um meira en 15 þorsk­ígildis­lestir, milli fiskveiðiáranna 2014/2015 og 2015/2016.

5. gr.

Tilkynningar um aflaheimildir.

Ráðuneytið tilkynnir sveitarstjórnum hversu miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðar­lags sem undir þær falla.

6. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda fyrir fiskveiðiárið 2015/2016.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. júlí 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Hinrik Greipsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica