Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

588/2015

Reglugerð um bann við handfæraveiðum fyrir sunnanverðum Austfjörðum. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 15. maí og til og með 15. júlí ár hvert, eru allar veiðar með handfærum bann­aðar á sunnanverðum Austfjörðum, sem markast af línu, sem dregin er milli eftirfarandi punkta:

  1. 64°55,00´N - 013°46,00´V
  2. 64°54,00´N - 013°36,00´V
  3. 64°39,00´N - 013°59,00´V
  4. 64°36,00´N - 014°12,00´V
  5. 64°45,00´N - 014°29,00´V
  6. 64°47,00´N - 014°22,00´V
  7. 64°42,00´N - 014°13,00´V
  8. 64°50,00´N - 013°51,00´V

2. gr.

Afstöðumynd af bannsvæðinu er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.

4. gr.

Með reglugerð þessari er felld úr gildi reglugerð nr. 578/2015, um bann á handveiðafærum fyrir sunnanverðum Austfjörðum.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 1. mgr. 9. gr. laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 2. júlí 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Erna Jónsdóttir.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica