Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

431/2015

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 542/2014, um veiðar á rækjustofninum á miðunum við Snæfellsnes. - Brottfallin

1. gr.

2. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Á tímabilinu frá og með 8. maí til og með 31. júlí ár hvert er skipum sem eru 105 brl að stærð eða minni og hafa aflamark til veiða á rækjustofninum á miðum við Snæfellsnes heimilt að stunda rækjuveiðar á Breiðafirði, sunnan 65°10´N og utan línu sem dregin er réttvísandi norður frá Krossnesvita. Afli sem fenginn er við þessar veiðar reiknast til aflamarks í rækju á miðunum við Snæfellsnes.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiði­land­helgi Íslands, laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 7. maí 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Baldur P. Erlingsson.

Hinrik Greipsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica