Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Breytingareglugerð

1279/2014

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 819/2010 um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (EB) nr. 106/2008 frá 15. janúar 2008 um áætlun Bandalagsins varðandi orkunýtnimerkingar á skrifstofubúnaði.

1. gr.

Heiti reglugerðar nr. 819/2010 verður: Reglugerð um gildistöku reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (EB) nr. 106/2008 frá 15. janúar 2008 um áætlun Sambandsins varðandi orkunýtnimerkingar á skrifstofubúnaði.

2. gr.

Við 2. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Eftirfarandi reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB), sem vísað er til á eftir lið 30 í IV. viðauka við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, eins og honum var breytt með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 187/2014, frá 25. september 2014, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn, skal öðlast gildi hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiðir af framangreindum viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (ESB) nr. 174/2013, frá 5. febrúar 2013, um breytingu á reglugerð framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (EB) nr. 106/2008 um áætlun Bandalagsins varðandi orkunýtnimerkingar á skrifstofubúnaði.

3. gr.

Við 3. gr. bætist ný málsgrein svohljóðandi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar og ráðsins (ESB) nr. 174/2013 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64/2014, 30. október 2014, bls. 340.

4. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 8. gr. laga nr. 72/1994, um merkingar og upplýsingaskyldu varðandi orkunotkun heimilistækja o.fl., með síðari breytingum, öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi eldri reglugerð nr. 831 frá 15. september 2006.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. desember 2014.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Ingvi Már Pálsson.

Erla Sigríður Gestsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.