Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

25/2015

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 925/2014, um loðnuveiðar íslenskra skipa á haust- og vetrarvertíð 2014 til 2015. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði til bráðabirgða orðast svo:

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 5. gr. eru loðnuveiðar í flotvörpu heimilar frá og með 6. janúar 2015 til og með 2. febrúar 2015 innan svæðis sem afmarkast af línum sem dregnar eru milli eftirfarandi punkta:

1. 67° 11´ N - 014° 30´ V
2. 67° 20´ N - 018° 00´ V
3. 68° 00´ N - 018° 00´ V
4. 68° 00´ N - 014° 30´ V

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. janúar 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica