Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

240/2015

Reglugerð um tímabundið bann við línuveiðum í utanverðum Hvalfirði. - Brottfallin

1. gr.

Frá kl. 24.00, 5. mars 2015 til 24.00 15. september 2015 eru allar línuveiðar bannaðar á svæði í utanverðum Hvalfirði, sem markast af línu, sem dregin er milli eftirfarandi punkta:

  1. 64°22,30′N - 021°45,40′V
  2. 64°21,00′N - 021°40,00′V
  3. 64°16,90′N - 021°50,70′V
  4. 64°14,00′N - 021°54,70′V
  5. 64°13,00′N - 022°00,00′V
  6. 64°14,00′N - 022°07,00′V
  7. 64°17,80′N - 021°59,70′V
  8. 64°18,40′N - 021°54,70′V

2. gr.

Afstöðumynd af bannsvæðinu er birt sem fylgiskjal við reglugerð þessa.

3. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiði­landhelgi Íslands með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. mars 2015.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


Þetta vefsvæði byggir á Eplica