Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

937/2014

Reglugerð um (28.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 73/2014, frá 17. maí 2014, öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2010/60/ESB frá 30. ágúst 2010 um tilteknar undanþágur sem varða setningu fóðurjurtafræblandna, sem ætlaðar eru til notkunar við varðveislu náttúrulegs umhverfis, á markað. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 36, frá 12. júní 2014, bls. 36.

2. gr.

Í ofangreindri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2010/60/ESB, verður a-liður 1. gr. svohljóðandi:

"Uppsprettusvæði" er svæði þar sem vaxa tegundir gróðurs sem er sérstaklega áhuga­verður vegna varðveislu erfðaauðlinda plantna og sem er tilnefnt í samræmi við innlenda löggjöf.

3. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum reglugerðar þessarar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

4. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 9. gr., 9. gr. a - 9. gr. e laga nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

6. gr.

Reglugerðin tekur þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. október 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica