Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

956/2014

Reglugerð um (18.) breytingu á reglugerð nr. 672/2008 um hámarksgildi varnarefnaleifa í matvælum og fóðri.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í II. kafla I. viðauka og XII. kafla II. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. og II. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli eftir­talinna ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar, öðlast eftirfarandi ESB-gerðir gildi hér á landi:

  1. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1317/2013 frá 16. desember 2013 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir 2,4-D, beflúbútamíð, sýklanilíð, díníkónasól, flórasúlam, metólaklór, S-metólaklór og milbemektín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2014, frá 28. júní 2014. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, frá 25. september 2014, bls. 46.
  2. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 36/2014 frá 16. janúar 2014 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir amínópýralíð, klórantranilípról, sýflúfenamíð, mepíkvat, metalaxýl-M, própamókarb, pýríófenón og kínoxýfen í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2014, frá 28. júní 2014. Reglu­gerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, frá 25. september 2014, bls. 104.
  3. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 51/2014 frá 20. janúar 2014 um breytingu á II. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir dímetómorf, indoxakarb og pýraklóstróbín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2014, frá 28. júní 2014. Reglu­gerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, frá 25. september 2014, bls. 89.
  4. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 61/2014 frá 24. janúar 2014 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir sýrómasín, fenprópidín, formetanat, oxamýl og tebúkónasól í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2014, frá 28. júní 2014. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, frá 25. september 2014, bls. 145.
  5. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 79/2014 frá 29. janúar 2014 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir bífenasat, klórprófam, esfenvalerat, flúdíoxóníl og þíóbenkarb í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 118/2014, frá 28. júní 2014. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 54, frá 25. september 2014, bls. 177.
  6. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1004/2013 frá 15. október 2013 um breytingu á II. og III. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir 8-hýdroxýkínólín, sýprókónasól, sýpródiníl, flúopýram, nikótín, pendímetalín, penþíópýrað og trífloxýstróbín í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 169/2014, frá 26. september 2014. Reglugerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambandsins nr. 64, 30. október 2014, bls. 63.
  7. Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 87/2014 frá 31. janúar 2014 um breytingu á II., III. og V. viðauka við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 396/2005 að því er varðar hámarksgildi leifa fyrir asetamípríð, bútralín, klórtólúrón, damínósíð, ísóprótúrón, píkoxýstróbín, pýrimetaníl og trínexapak í eða á tilteknum afurðum. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2014, frá 26. september 2014. Reglu­gerðin birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 64, 30. október 2014, bls. 110.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar vegna matvælaeftirlits sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a - 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

5. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. október 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica