Innanríkisráðuneyti

914/2014

Reglugerð um EES-gerðir sem falla undir tilskipun 2009/22/EB og vernda hagsmuni neytenda.

1. gr.

Eftirfarandi EES-gerðir falla undir viðauka við tilskipun 2009/22/EB, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga nr. 141/2001:

  1. Tilskipun ráðsins 85/577/EBE frá 20. desember 1985 um að vernda neytendur þegar samningar eru gerðir utan fastra starfsstöðva.
  2. Tilskipun ráðsins 87/102/EBE frá 22. desember 1986 um samræmingu á lögum og stjórnsýslufyrirmælum aðildarríkjanna varðandi neytendalán.
  3. Tilskipun ráðsins 89/552/EBE frá 3. október 1989 um samræmingu tiltekinna ákvæða í lögum og stjórnsýslufyrirmælum í aðildarríkjunum um sjónvarpsrekstur: 10.-21. gr.
  4. Tilskipun ráðsins 90/314/EBE frá 13. júní 1990 um ferðapakka, orlofspakka og skoðunarferðapakka.
  5. Tilskipun ráðsins 93/13/EBE frá 5. apríl 1993 um óréttmæta skilmála í neytenda­samningum.
  6. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 97/7/EB frá 20. maí 1997 um neytendavernd að því er varðar fjarsölusamninga.
  7. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 1999/44/EB frá 25. maí 1999 um tiltekna þætti í sölu neysluvara og ábyrgð þar að lútandi.
  8. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2000/31/EB frá 8. júní 2000 um tiltekna lagalega þætti þjónustu, einkum rafrænna viðskipta, í tengslum við upplýs­inga­samfélagið á innri markaðnum (tilskipun um rafræn viðskipti).
  9. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2001/83/EB frá 6. nóvember 2001 um Bandalagsreglur um lyf sem ætluð eru mönnum: 86.-100. gr.
  10. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2002/65/EB frá 23. september 2002 varðandi fjarsölu á fjármálaþjónustu fyrir neytendur.
  11. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/29/EB frá 11. maí 2005 um óréttmæta viðskiptahætti gagnvart neytendum á innri markaðnum.
  12. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2006/123/EB frá 12. desember 2006 um þjónustu á innri markaðnum.
  13. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/122/EB frá 14. janúar 2009 um neytenda­vernd að því er varðar tiltekna þætti skiptileigusamninga, langtíma­samn­inga um orlofstilboð, endursölu- og skiptasamninga.

2. gr.

Lagastoð og gildistaka.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laga nr. 141/2001, um lögbann og dóms­mál til að vernda heildarhagsmuni neytenda, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

Innanríkisráðuneytinu, 30. september 2014.

Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica