Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

771/2014

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 653/2014 um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2014/2015. - Brottfallin

1. gr.

4. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Fiskistofa ákveður form tilboða. Í tilboði skal útgerðaraðili skips tilgreina magn þeirrar tegundar sem boðið er í og magn þeirrar tegundar sem boðið er í skiptum, svo og önnur atriði sem Fiskistofa ákveður.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 26. ágúst 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica