Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

780/2014

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 588/2014, um fjárhæð, álagningu og innheimtu veiðigjalda fiskveiðiárið 2014/2015. - Brottfallin

1. gr.

Á eftir orðunum "sem ekki eru háðar aflamarki" í 4. gr. reglugerðarinnar kemur: hvort sem stundaðar eru af aflamarks- eða krókaaflamarksskipum.

2. gr.

Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 16. gr. og ákvæði til bráðabirgða I, í lögum nr. 74/2012 um veiðigjöld, með síðari breytingum og lögum nr. 116/2006 um stjórn fisk­veiða, með síðari breytingum og birtist til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. ágúst 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica