Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

725/2014

Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 589/2009 um próf til löggildingar endurskoðunarstarfa. - Brottfallin

1. gr.

6. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Prófnefnd skal gefa próftaka kost á að sjá niðurstöður úr sínu eigin prófi og einstökum þáttum þess, ef prófmaður óskar þess innan eins mánaðar frá því að niðurstöður prófa liggja fyrir. Sé próftaki ósáttur við niðurstöðu nefndarinnar getur hann óskað eftir skýringum á þeim og skal veita slíkar skýringar innan mánaðar frá því að þeirra er óskað.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er skv. heimild í 3. mgr. 5. gr., sbr. og 31. gr. laga nr. 79/2008 um endurskoðendur, öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 29. júlí 2014.

F. h. iðnaðar- og viðskiptaráðherra,

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

Sigurbjörg Stella Guðmundsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica