Fara beint í efnið

Prentað þann 24. apríl 2024

Breytingareglugerð

611/2014

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 433/2013, um stjórn veiða á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) utan lögsögu ríkja.

1. gr.

1. ml. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Veiðar á karfa (S.Mentella) í Síldarsmugunni (ICES svæði I + II), austan 22°V eru heimilar frá og með 1. júlí til og með 31. desember 2014.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 12. júní 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kristján Freyr Helgason.

Baldur P. Erlingsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.