Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

527/2014

Reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð nr. 662/2013, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2013/2014. - Brottfallin

1. gr.

Á eftir 1. málsl. 3. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar bætist nýr málsl., svohljóðandi:

Heimilt er að flytja aflamark í ufsa frá krókaaflamarksbát til skipa sem hafa veiðileyfi með aflamarki, í jöfnum skiptum í þorskígildum talið fyrir aflamark í ýsu.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast gildi 10. júní 2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. júní 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica