Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

519/2014

Reglugerð um (9.) breytingu á reglugerð nr. 258/2012 um rækjuveiðar innfjarða. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Rækjuveiðar á Eldeyjarsvæðinu eru heimilar frá gildistöku reglugerðar þessarar til 31. desember 2014.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og lögum nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 3. júní 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica