Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

353/2014

Reglugerð um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. úthlutar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tollkvótum samkvæmt II. kafla í stofnsáttmála Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA-ríkjanna) varðandi landbúnað, með síðari breytingum, á grundvelli 12. gr. tollalaga nr. 88/2005, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993. Reglugerð þessi gildir um innflutning á afurðum upprunnum í Noregi og Sviss.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollskrárnr:

kg

%

kr./kg.

ex0210.xxxx

Nautgripakjöt - Vöruliður 0210:

14.04.14 - 30.06.14

10.000

Kjöt af dýrum af nautgripakyni:

0210.2001

-- Beinlaust

0

0

0210.2009

-- Annars

0

0

0406.xxxx

Ostur og ystingur:

14.04.14 - 30.06.14

15.000

0

0

3. gr.

Tollkvótum er úthlutað samkvæmt auglýsingu atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, sem birt er á heimasíðu þess, þar sem tilgreindir eru skilmálar vegna úthlutunarinnar.

4. gr.

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur hverju sinni, skal leita tilboða í tollkvóta vegna viðkomandi vöruliðar. Tilboð skulu ráða úthlutun. Til þess að tilboð teljist gilt skal því fylgja ábyrgðaryfirlýsing banka, sparisjóðs eða vátryggingafélags þar sem fram kemur að viðkomandi ábyrgðarveitandi tryggi að tilboðsgjafi geti staðið við tilboð sitt.

Tilboðsgjafi sá er hæst býður skal leysa til sín úthlutaðan tollkvóta með greiðslu andvirðis hans innan sjö daga frá dagsetningu tilkynningar um niðurstöðu útboðs.

Úthlutun skv. 1. og 2. mgr. er ekki framseljanleg.

5. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

6. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

7. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. B laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til og með 30. júní 2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 11. apríl 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Ólafur Friðriksson.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica