Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Breytingareglugerð

445/2014

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 189/1990 um innflutning og útflutning á plöntum og plöntuafurðum.

1. gr.

Í stað orðanna "Rannsóknastofnun landbúnaðarins" í 1. mgr. 3. gr. og sömu orða hvarvetna annars staðar í reglugerðinni kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Matvælastofnun.

2. gr.

9. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:

Matvælastofnun er heimilt að leyfa innflutning á plöntum og öðrum vörum sem falla undir a-e lið 1. mgr. 5. gr. í vísinda- og fræðatilgangi eða af öðrum ástæðum, enda sé tryggt að engir skaðvaldar berist til landsins við innflutning. Heimilt er að setja skilyrði fyrir innflutningnum sem umsækjandi skuldbindur sig til að hlíta, svo sem um sótthreinsun, ræktun í sóttkví o.fl. Umsóknir skulu berast Matvælastofnun skriflega ásamt rökstuðningi fyrir nauðsyn innflutnings.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum í plöntum, nr. 51/1981. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 16. apríl 2014.

Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Ása Þórhildur Þórðardóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.