Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

479/2014

Reglugerð um stöðvun veiða á rækju í Kolluál, Jökuldjúpi og Breiðafirði á fiskveiðiárinu 2013/2014. - Brottfallin

1. gr.

Með vísan til þess að magn rækjuafla í Kolluál, Jökuldjúpi og Breiðafirði er umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar á yfirstandandi fiskveiðiári, eru allar veiðar á rækju óheimilar frá og með kl. 24.00 þann 23. maí 2014:

A. Í Kolluál og Jökuldjúpi, á svæði sem afmarkast af línu sem dregin er milli eftirfarandi punkta:

  1. 64°04′90 N - 22°43′60 V
  2. 64°43′70 N - 23°48′20 V
  3. 64°45′00 N - 23°55′30 V
  4. 64°51′30 N - 24°02′50 V
  5. 64°53′10 N - 24°02′50 V
  6. 65°15′00 N - 24°02′50 V
  7. 65°15′00 N - 25°40′00 V
  8. 64°05′00 N - 25°40′00 V
  9. 64°04′90 N - 22°43′60 V

B. Á Breiðafirði, á svæði sem afmarkast af línu sem dregin er milli eftirfarandi punkta:

  1. 64°58′28 N - 23°21′42 V
  2. 65°10′00 N - 23°21′42 V
  3. 65°10′00 N - 24°02′50 V
  4. 64°53′10 N - 24°02′50 V

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og lögum nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, og öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. maí 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica