Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1225/2013

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 806/2013 um ráðstöfun aflaheimilda í íslenskri sumargotssíld á fiskveiðiárinu 2013/2014, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

1. mgr. 2. gr. a orðast svo:

Úthluta skal allt að 1300 lestum af íslenskri sumargotssíld á fiskveiðiárinu 2013/2014 til síldveiða innan brúar í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi til og með 30. desember 2013.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum og í lögum 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og öðlast reglugerðin þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 30. desember 2013.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica