Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

25/2014

Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 1184/2013 um loðnuveiðar grænlenskra og færeyskra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2013/2014. - Brottfallin

1. gr.

Bráðbirgðaákvæði I við reglugerðina verður svohljóðandi:

Grænlenskum skipum er heimilt til og með 5. febrúar 2014 að veiða með flotvörpu 13.000 tonn af úthlutuðu aflamarki til grænlenskra skipa innan svæðis sem afmarkast af línum sem dregnar eru milli eftirfarandi punkta:

  1. 67° 11´ N - 014° 30´ V
  2. 68° 00´ N - 014° 30´ V
  3. 68° 00´ N - 008° 30´ V
  4. 65° 15´ N - 008° 30´ V
  5. 65° 15´ N - 011° 20´ V
  6. 66° 05´ N - 011° 30´ V
  7. 66° 15´ N - 012° 00´ V
  8. 66° 12´ N - 012° 22´ V
  9. 66° 40´ N - 012° 40´ V
  10. 66° 47´ N - 013° 00´ V
  11. 66° 52´ N - 013° 08´ V
  12. 67° 11´ N - 014° 30´ V

Hafrannsóknastofnuninni er heimilt að grípa til skyndilokunar veiðisvæða, sbr. 10. og 11. gr. laga nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, fari hlutfall loðnu, smærri en 14 sm, yfir 20%, miðað við fjölda. Stærð loðnu er mæld frá trjónuoddi að sporðsenda.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. janúar 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica