Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

186/2014

Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 662/2013, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2013/2014. - Brottfallin

1. gr.

c. liður 8. mgr. 9. gr. reglugerðarinnar orðast svo:
c. Heimildin skiptist í fjögur þriggja mánaða tímabil á fiskveiðiárinu. Ekki er heimilt að flytja ónýttar heimildir milli tímabilanna. Þó má miða ýsuafla sem fæst sem meðafli eða meðafla við grásleppuveiðar, við heimild fiskveiðiársins í heild, enda sé sá afli gerður upp í lok þess.

2. gr.

Reglugerð þessi sem sett er skv. ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 21. febrúar 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,
Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica