Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

313/2014

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1145/2013, um togveiðar á kolmunna 2014.

1. gr.

Í stað töflu í 1. gr. kemur ný tafla sem orðast svo:

A

B

C

Lestir

Lestir

Lestir

194.722

9.347

185.375


2. gr.

1. ml. 7. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Um tilkynningar við kolmunnaveiðar á alþjóðlegu hafsvæði gilda ákvæði reglugerðar nr. 285/2014, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC), með síðari breytingum, og taka þær tilkynningar einnig til veiða innan lögsög­unnar sem og veiða í færeyskri lögsögu.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breyt­ingum, laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, með síðari breyt­ingum og laga nr. 151/1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breyt­ingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 28. mars 2014.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Kristján Freyr Helgason.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica