Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1091/2013

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 934/2013 um loðnuveiðar erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands á loðnuvertíðinni 2013/2014. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina bætist ákvæði til bráðabirgða svohljóðandi:

Grænlenskum skipum er heimilt til og með 5. febrúar 2014 að veiða með flotvörpu 18% af aflamarki hvers skips innan svæðis sem afmarkast af línum sem dregnar eru milli eftirfarandi punkta:

  1. 67° 11´ N - 014° 30´ V
  2. 68° 00´ N - 014° 30´ V
  3. 68° 00´ N - 008° 30´ V
  4. 65° 15´ N - 008° 30´ V
  5. 65° 15´ N - 011° 20´ V
  6. 66° 05´ N - 011° 30´ V
  7. 66° 15´ N - 012° 00´ V
  8. 66° 12´ N - 012° 22´ V
  9. 66° 40´ N - 012° 40´ V
  10. 66° 47´ N - 013° 00´ V
  11. 66° 52´ N - 013° 08´ V
  12. 67° 11´ N - 014° 30´ V

Hafrannsóknastofnuninni er heimilt að grípa til skyndilokunar veiðisvæða, sbr. 10. og 11. gr. laga nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, fari hlutfall loðnu, smærri en 14 sm, yfir 20%, miðað við fjölda. Stærð loðnu er mæld frá trjónuoddi að sporðsenda.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett skv. ákvæðum laga nr. 22/1998, um veiðar og vinnslu erlendra skipa í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. desember 2013.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica