Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

951/2013

Reglugerð um (26.) breytingu á reglugerð nr. 301/1995 um eftirlit með sáðvöru.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í III. kafla I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 107/2013 frá 15. júní 2013 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdartilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2012/37/ESB um breytingu á tilteknum viðaukum við tilskipanir ráðsins 66/401/EBE og 66/402/EBE að því er varðar skilyrðin sem fræ Galega orientalis Lam. þarf að uppfylla, hámarksþyngd framleiðslueininga fræs af tilteknum tegundum fóðurjurta og sýnastærð Sorghum spp. Tilskipunin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 37 frá 27. júní 2013, bls. 105.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 22/1994 um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru. Reglugerðin tekur þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 14. október 2013.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Halldór Runólfsson.

Eggert Ólafsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica