Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

664/2013

Reglugerð um úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2013/2014. - Brottfallin

1. gr.

Heildaraflaheimildir.

Á fiskveiðiárinu 2013/2014 skal sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra úthluta aflamarki sem nemur allt að 6.824 þorskígildislestum af botnfiski og ráðstafa til stuðnings byggðar­lögum, þannig:

  1. Til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.
  2. Til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í byggðarlögunum. Heimilt er að ráðstafa aflaheimildum samkvæmt þessum lið til allt að þriggja ára í senn.

Byggðarlög samkvæmt 1. mgr. eru byggðakjarnar sem liggja að sjó og eru háðir veiðum og/eða vinnslu á sjávarafla. Minni byggðarlög teljast byggðarlög með færri íbúum en 2.000, miðað við 1. desember 2012.

2. gr.

Skipting aflaheimilda eftir botnfisktegundum.

Aflaheimildir samkvæmt 1. gr. skiptast á eftirgreindar botnfisktegundir, miðað við slægðan fisk, þannig:

 

Þorskur

4.682 lestir,

 

ýsa

   830 lestir,

 

ufsi

1.245 lestir og

 

steinbítur

   175 lestir.

3. gr.

Úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga.

Við úthlutun aflaheimilda til byggðarlaga skal miðað við að allt að 6.000 þorskígildis­lestum sé ráðstafað til minni byggðarlaga sem lent hafa í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi og háð eru veiðum og/eða vinnslu á botnfiski.

Þá skal miðað við að allt að 2.000 þorskígildislestum sé ráðstafað til byggðarlaga sem orðið hafa fyrir óvæntri skerðingu á heildaraflaheimildum fiskiskipa, sem gerð hafa verið út og landað hafa afla í viðkomandi byggðarlögum og sem veruleg áhrif hefur haft á atvinnuástand í þeim.

Þrátt fyrir ákvæði 1. og 2. mgr. skal við útreikning á hlut hvers byggðarlags sá kostur ávallt valinn fyrir hvert byggðarlag sem gefur því mestar aflaheimildir samkvæmt útreikn­ingi 4. gr. A eða samtölu 4. gr. B og C.

4. gr.

Útreikningur á aflaheimildum til byggðarlaga.

Við útreikning á hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags skal leggja til grund­vallar eftirfarandi forsendur:

  1. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir samkvæmt 1. mgr. 3. gr. koma í hlut hvers byggðarlags þar sem íbúar eru færri en 2.000 þann 1. desember 2012. Við þann útreikning skal gefa hverju byggðarlagi punkta sem fundnir eru þannig:
    1. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskafli fiskiskipa hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2003/2004 að telja til fiskveiðiársins 2012/2013, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. desember 2012, skal gefa tvo punkta.
    2. Fyrir hvert 0,1% sem botnfiskaflaheimildir fiskiskipa frá byggðarlagi hafa mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2003/2004 að telja til fiskveiðársins 2013/2014, sem hlutfall af heildarbotnfiskaflaheimildum allra byggðarlaga með færri en 2.000 íbúa þann 1. desember 2012, skal gefa tvo punkta.
    3. Fyrir hvert 0,1% sem vinnsla botnfiskafla í byggðarlagi hefur mest dregist saman, frá fiskveiðiárinu 2003/2004 að telja til fiskveiðiársins 2012/2013, sem hlutfall af heildarbotnfiskafla sem unninn hefur verið í öllum byggðar­lögum með færri en 2.000 íbúa þann 1. desember 2012, skal gefa fjóra punkta.
    Ráðuneytið metur hvaða viðmiðunarár er hagstæðast hverju byggðarlagi til útreikn­ings aflaheimilda samkvæmt þessari reglugerð og leggur þar til grundvallar tölu­legar upplýsingar frá Fiskistofu. Sama fiskveiðiárið skal ávallt lagt til grund­vallar við mat á öllum þáttum fyrir hvert byggðarlag, sbr. 1.-3. tl. 1. mgr., og hafi aukning orðið í einum þætti milli viðmiðunarára kemur hún til frádráttar. Saman­lagðir punktar vegna samdráttar í einstökum byggðarlögum ráða því hversu mikið af aflaheimildum kemur í þeirra hlut samkvæmt þessari grein en skulu þó að lágmarki vera 15 þorsk­ígildis­lestir og að hámarki 300 þorskígildislestir.
    Komi í ljós veruleg breyting á reiknuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein skal ráðuneytið kanna, hvort raunverulegar breytingar hafi orðið á útgerð eða botnfiskvinnslu í viðkomandi byggðarlagi. Hafi svo ekki orðið er heimilt að halda úthlutuðum aflaheimildum samkvæmt þessari grein óbreyttum frá úthlutun fisk­veiði­árið 2012/2013.
  2. Ráðuneytið skal reikna út hve miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðarlags samkvæmt 2. mgr. 3. gr. Við þann útreikning skal leggja eftirfarandi forsendur til grundvallar:
    Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á rækju, sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildislestir eða minni frá fiskveiðiárinu 2003/2004, 2004/2005, 2005/2006, 2006/2007, 2007/2008, 2008/2009, 2009/2010, 2010/2011 eða 2011/2012 að telja til fiskveiðiársins 2012/2013 koma aflaheimildir, sem nema 70 þorskígildislestum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildislestir en minni en 1.500 þorskígildislestir í byggðarlagi koma 140 þorskígildislestir í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildislestir eða meiri í byggðarlagi koma 210 þorskígildislestir í þess hlut.
  3. Hafi samdráttur í byggðarlagi í vinnslu á skel (hörpudisk og/eða kúfskel), sem veidd er hér við land, verið 400 þorskígildislestir eða minni frá fiskveiðiárinu 2003/2004, 2004/2005, 2005/2006, 2006/2007, 2007/2008, 2008/2009, 2009/2010, 2010/2011 eða 2011/2012 að telja til fiskveiðiársins 2012/2013 koma aflaheimildir, sem nema 70 þorskígildislestum í þess hlut. Hafi samdrátturinn í vinnslu verið meiri en 400 þorskígildislestir en minni en 1.500 þorskígildislestir í byggðarlagi koma 140 þorskígildislestir í þess hlut. Hafi samdráttur í vinnslu verið 1.500 þorskígildislestir eða meiri í byggðarlagi koma 210 þorskígildislestir í þess hlut. Nú sýna útreikningar að aflaheimildir koma einnig í hlut tiltekins byggðarlags samkvæmt A-lið þessarar greinar og skal þá einungis úthluta aflaheimildum til byggðarlags á grundvelli þess ákvæðis sem meira gefur, þ.e. A-liðar eða samtölu B- og C-liðar.
  4. Þegar reiknaður hefur verið út hlutur einstakra byggðarlaga samkvæmt A-lið hér að ofan, skal hlutur byggðarlaga með færri íbúa en 400 og sem úthlutað var afla­heimildum á fiskveiðiárinu 2012/2013, og eiga rétt til úthlutunar fiskveiðiárið 2013/2014, leiðréttur þannig að ekkert þeirra lækki um meira en 15 þorsk­ígildis­lestir, milli fiskveiðiáranna 2012/2013 og 2013/2014.

5. gr.

Tilkynningar um aflaheimildir.

Ráðuneytið tilkynnir sveitarstjórnum hversu miklar aflaheimildir koma í hlut hvers byggðar­lags sem undir þær falla.

6. gr.

Gildistaka.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 4. mgr. 10. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi og kemur til framkvæmda fyrir fiskveiðiárið 2013/2014.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 10. júlí 2013.

Sigurður Ingi Jóhannsson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann Guðmundsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica