Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

672/2013

Reglugerð um (10.) breytingu á reglugerð nr. 770, 8. september 2006, um veiðar á íslenskri sumargotssíld, með síðari breytingum. - Brottfallin

1. gr.

Við reglugerðina kemur nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Frá 17. júlí til 10. september 2013 eru síldveiðar í flottroll eingöngu heimilar utan 200 m dýptarlínu en þó hvergi nær landi en 12 sjómílur frá viðmiðunarlínu.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 2. mgr. 6. gr. laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 15. júlí 2013.

F. h. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra,

Jóhann Guðmundsson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica