Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

303/2013

Reglugerð um almenna heimild til innflutnings með opnum tollkvótum á nautakjöti. - Brottfallin

1. gr.

Fyrir það tímabil sem tilgreint er í 2. gr. veitir atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra almenna heimild til innflutnings á nautakjöti skv. 5. ml. 3. mgr. 65. gr. laga nr. 99/1993, sbr. 12. gr. tollalaga nr. 88/2005 og viðauka III A með síðari breytingum, í samræmi við tillögur nefndar skv. 87. gr. laga nr. 99/1993.

2. gr.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, vörumagn, verð- og magntoll:

Vara

Tímabil

Vörumagn

 Verðtollur

 Magntollur

kg

%

kr./kg

Tollskrárnr.:

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, fryst:

95.000

0202.1000

Skrokkar og hálfir skrokkar

01.07.13 - 30.09.13

0

233

0202.20xx

Sneitt á annan hátt með beini

01.07.13 - 30.09.13

0

519

0202.30xx

Beinlaust

01.07.13 - 30.09.13

0

962

Kjöt af dýrum af nautgripakyni, saltað,

þurrkað eða reykt:

0210.20xx

Beinlaust/annars

01.07.13 - 30.09.13

0

586

3. gr.

Tollkvótum skv. 2. gr. verður stýrt með tímabili innflutnings, þó þannig að ef heildar­innflutningur verður meiri en tilgreint magn segir til um, skulu gilda tollar samkvæmt tollaskrá.

4. gr.

Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.

5. gr.

Brot á reglugerð þessari varða viðurlögum skv. 82. gr. laga nr. 99/1993. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 65. gr. laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. Reglugerðin öðlast þegar gildi og gildir til 30. september 2013.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. apríl 2013.

Steingrímur J. Sigfússon.

Rebekka Hilmarsdóttir.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica