Fara beint í efnið

Prentað þann 18. apríl 2024

Stofnreglugerð

371/2013

Reglugerð um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 233/2012 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 að því er varðar samþykkt breyttrar landsáætlunar um varnir gegn riðuveiki.

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 192/2012 frá 1. nóvember 2012 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 233/2012 um framkvæmd reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 999/2001 að því er varðar samþykkt breyttrar landsáætlunar Danmerkur um varnir gegn riðuveiki. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 9, frá 7. febrúar 2013, bls. 253.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum, og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum, og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með stoð í lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 96/1997 um slátrun og sláturafurðir og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim.

5. gr.

Reglugerð þessi öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 24. apríl 2013.

F. h. r.

Halldór Runólfsson.

Eggert Ólafsson.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.