Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

1192/2012

Reglugerð fyrir Hitaveitu Húnaþings vestra.

I. KAFLI Rekstrarform, tilgangur o.fl.

1. gr. Eignarhald.

Hitaveita Húnaþings vestra er sjálfstætt fyrirtæki, sem Húnaþing vestra á og starfrækir, í reglugerð þessari nefnt HHv.

2. gr. Tilgangur.

Tilgangur HHv. er að meginstefnu rekstur hitaveitna og önnur sú starfsemi sem tengist vinnslu, dreifingu og sölu á heitu vatni.

3. gr. Veitusvæði.

Veitusvæði hitaveitunnar er þéttbýli Borðeyrar og nágrennis, Laugarbakki og nágrenni í Miðfirði, Hvammstangi og nágrenni við Miðfjörð og Reykir og nágrenni í Hrútafirði.

II. KAFLI Stjórn Hitaveitu Húnaþings vestra.

4. gr. Stjórn.

Sveitarstjórn Húnaþings vestra fer með stjórn Hitaveitu Húnaþings vestra.

5. gr. Verksvið stjórnar og veitustjóra.

Sveitarstjórn ræður framkvæmdastjóra hitaveitunnar. Veitustjóri annast allan daglegan rekstur hennar og skal í þeim efnum fara eftir stefnu og fyrirmælum sem sveitarstjórn gefur. Veitustjóri ræður aðra starfsmenn til veitunnar.

6. gr. Fjárhagur.

HHv. skal hafa sjálfstæðan fjárhag og sjálfstætt reikningshald. Reikningsár hitaveitunnar er almanaksárið og skulu reikningar hennar fylgja reikningum sveitarsjóðs og vera endurskoðaðir af endurskoðendum hans. Tekjum veitunnar skal varið til að standa straum af nauðsynlegum rekstri og stofnkostnaði, þannig að tryggður sé öruggur rekstur veitunnar, svo og til greiðslu afborgana og vaxta af skuldum veitunnar vegna stofnkostnaðar. Ráðstöfun hagnaðar eða jöfnun taps skal ákveðin af sveitarstjórn.

Heimilt er að mynda framkvæmdasjóð er hentugur þykir til undirbúnings kostnaðarsamra framkvæmda í uppbyggingu veitunnar.

Við gerð gjaldskrár skal þess gætt að orkuverð sé við það miðað að eðlilegur afrakstur fáist af því fjármagni, sem á hverjum tíma er bundið í rekstri fyrirtækisins, einnig skal að því stefnt að veitan skili nægilegum greiðsluafgangi til þess að geta jafnan með eigin fjármagni og hæfilegum lántökum tryggt notendum sínum næga orku á hagkvæmu verði.

III. KAFLI Almenn ákvæði.

7. gr. Húsaveita, kaupandi o.fl.

Eigandi húseignar, eða annarra mannvirkja sem tengjast veitukerfi HHv. telst eigandi húsveitu. Kaupandi vatns er sá sem skráður er fyrir viðkomandi mæli eða hemli hjá HHv. hverju sinni.

8. gr. Afhending og meðferð vatns, eignarréttur o.fl.

HHv. afhendir heitt vatn um veitukerfi sitt í samræmi við gildandi reglugerð og gjaldskrá á hverjum tíma.

HHv. er heimilt að semja sérstaklega um sölu á heitu vatni utan almennra söluskilmála. Slíkir samningar skulu háðir samþykki sveitarstjórnar.

HHv. er heimilt að nota aftur heitt vatn, sem runnið hefur um hitakerfi hvers húseiganda (bakrennslisvatn) endurgjaldslaust. Heimilt er að leyfa frekari nýtingu þess svo sem til upphitunar í gripahúsum, bílastæðum, gróðurhúsum o.s.frv.

HHv. ber enga ábyrgð á tjóni sem kann að leiða af notkun bakrennslisvatns, s.s. frostskemmdum o.þ.h. Óheimilt er að tengja vatnsdælur, varmadælur og annan slíkan búnað við framrás eða bakrás hitaveitunnar. Húseiganda er heimilt að setja varmaskipta á heitt neysluvatn og vatn til kyndingar, enda kosti hann þá framkvæmd sjálfur.

9. gr. Breytingar á þrýstingi, magni o.fl.

Óviðráðanlegar breytingar á þrýstingi eða magni á heitu vatni eru án ábyrgðar HHv. Sama gildir um hitastig heita vatnsins. Um breytingar, er stafa af öðrum ástæðum, skal HHv. tilkynna notendum með hæfilegum fyrirvara sé þess nokkur kostur.

Þar sem svo hagar til að þrýstingsmunur er umtalsverður á kerfum hita- og vatnsveitu kann að vera nauðsynlegt að setja þrýstiminnkara á húskerfi til að jafna þrýsting. Húseiganda ber að setja slíkan búnað upp á sinn kostnað telji pípulagningameistari hússins, byggingarfulltrúi eða HHv. það nauðsynlegt.

10. gr. Rekstrartruflanir o.fl.

Ef nauðsyn krefur, vegna viðgerða á dælustöðvum, vatnsgeymum, vatnsæðum og öðrum lögnum veitukerfa HHv. eða af öðrum ástæðum, getur HHv. fyrirskipað takmörkun á vatnsnotkun, takmarkað vatnsrennsli eða lokað fyrir vatn, eftir því sem þörf krefur hverju sinni, enda tilkynni HHv. fyrirfram um slíkar takmarkanir, ef unnt er.

HHv. ber ekki fjárhagslega ábyrgð á tjóni sem leiða kann af rekstrartruflunum er kunna að verða á veitukerfunum svo sem vegna frosta, rafmagnstruflana, náttúruhamfara eða annarra óviðráðanlegra atvika. Sama gildir ef rennsli í vatnsæð er stöðvað um stundarsakir vegna viðgerða eða annarra nauðsynlegra framkvæmda veitunnar. Þurfi að takmarka notkun á heitu vatni ákveður HHv. hvar og hvernig takmarkanir fara fram. Takmörkun um skamman tíma hefur ekki áhrif á skyldu til greiðslu mælaleigu eða fasta- og hemlagjalda.

Stöðvun á rekstri veitunnar eða hluta hennar vegna viðhalds eða tenginga skal tilkynna fyrirfram ef unnt er og HHv. skal kappkosta að koma á eðlilegum rekstri svo fljótt sem verða má.

Full vatnsgjöld, svo og fastagjald hitaveitu eða mælaleigu ber að greiða, þótt lokun fari fram og HHv. ber ekki fjárhagslega ábyrgð á tjóni, er leiða kann af rekstrartruflunum, er verða vegna vinnu við veitukerfi HHv., rafmagnstruflana eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum.

HHv. er ekki skylt að greiða bætur vegna takmörkunar á vatnsafhendingu eða vegna tímabundinnar lækkunar á hitastigi heita vatnsins.

11. gr. Viðhald húsveitu.

Í samræmi við skyldur samkvæmt byggingarlögum og reglugerðum er húsráðendum skylt að halda vel við vatnslögnum og vatnstækjum innan húss.

12. gr. Endursala.

Kaupendum er óheimil endursala á heitu vatni nema um það sé sérstaklega samið. Hitaveitunni er heimilt að kaupa orku til endursölu.

IV. KAFLI Gjaldskrár og söluskilmálar.

13. gr. Gild umsókn um tengingu húsveitu.

Skilyrði fyrir sölu á vatni er að í gildi sé samþykkt umsókn um tengingu viðkomandi húsveitu við veitukerfi HHv. Sækja skal um tengingu á þar til gerðu eyðublaði.

14. gr. Samningur um kaup á heitu vatni.

Heitu vatni verður ekki hleypt á húsveitu fyrr en heimæðargjald hefur verið greitt eða um það samið. Upphaf og lok samningsins um orkukaup eru við skráningu tilkynninga hjá hitaveitunni þess efnis.

15. gr. Mælar, hemlar, stærð, gerð, prófanir o.fl.

HHv. ákveður stærð og gerð hemla og mæla sem notaðir eru í mælagrindur. Miðað er við að veitan selji heitt vatn um rennslismæla. HHv. er þó í undantekningartilfellum heimilt að selja heitt vatn skv. hemli. HHv. breytir stillingu hemils eftir óskum húseiganda fyrsta árið, sem hús hans er tengt við hitakerfið, en síðan verður hemilsstillingu að jafnaði breytt einu sinni á ári og skal skrifleg beiðni um breytingu koma fram við HHv. fyrir 1. september ár hvert. Hámarksstilling hemils gildir allt árið þótt heitavatnsnotkun verði minni hluta úr ári. Minnsta sala gegnum hemil skal vera 1,5 mínútulítrar. Selt vatnsmagn standi ávallt á heilum eða hálfum mínútulítra.

Ef kaupandi óskar að hemill eða mælir sé prófaður skal hann senda skriflega beiðni þar um til hitaveitunnar. Komi í ljós við þá athugun að frávik sé 5% eða minna, er heimilt að gera kaupanda að greiða álestrargjald. Sé frávik meira skal HHv. greiða kostnað við prófunina og leiðrétta reikning kaupanda í samræmi við niðurstöður hennar, þó ekki fyrir lengra tímabil en tvo mánuði nema kaupandi eða HHv., eftir því sem við á, geti sannað að um lengra tímabil hafi verið að ræða, þó lengst fjögur ár.

16. gr. Fastagjald og gjald fyrir mælda notkun.

Gjaldi vegna kaupa á heitu vatni er skipt í fast gjald, gjald eftir hemli (lítri á mínútu) og gjald fyrir hvern seldan rúmmetra vatns samkvæmt rennslismæli auk mælaleigu. Greiðsla fastagjalds eða mælaleigu hefst þegar uppsetningu mælagrindar er lokið, óháð því hvenær vatnskaup hefjast.

Kaupandi skal greiða fastagjaldið/mælaleigu þrátt fyrir stöðvun á vatnsafhendingu vegna vanskila eða annarra vanefnda kaupanda þar til samningur um kaup á heitu vatni er úr gildi fallinn vegna uppsagnar.

17. gr. Reikningar, uppgjör o.fl.

Kaupandi skal greiða HHv. fyrir heitt vatn samkvæmt gildandi gjaldskrá HHv. Við breytingar á gjaldskrá skal reikningsfæra notkun í beinu hlutfalli við gildistíma hverrar gjaldskrár á því tímabili sem reikningurinn tekur til. HHv. má byggja reikninga á áætlun um vatnskaup og innheimta samkvæmt slíkri áætlun.

Þar til vatnsmælir hefur verið settur upp, eða ef vatnsmælir bilar áætlar HHv. heitavatnsnotkun með hliðsjón af eðlilegri þörf viðkomandi húss/mannvirkis. Reikningar, sem byggjast á staðreyndri vatnsnotkun, nefnast álestrarreikningar, en reikningar sem byggjast á áætlaðri notkun, nefnast áætlunarreikningar.

Vatnsnotkun samkvæmt mælum skal staðreyna eigi sjaldnar en á 12 mánaða fresti. Þegar vatnsnotkun hefur verið staðreynd skal hún reikningsfærð og gerð upp fyrir tímabilið milli álestra og koma þá áætlunarreikningar til frádráttar.

Kaupandi getur þó jafnan, gegn greiðslu mælaálestrargjalds, krafist aukaálestrar og uppgjörs. Ennfremur getur hann óskað eftir breytingu á áætlun um vatnskaupin vegna nýrra forsendna.

Reikninga skal senda kaupanda á notkunarstað eða annan stað sem hann tiltekur. Reikninga ber að greiða á tilgreindum gjalddaga og eigi síðar en á eindaga. Sé reikningur eigi greiddur fyrir eindaga er fram kemur á reikningi, reiknast dráttarvextir frá gjalddaga. Útsending reikninga fyrir vatnsnotkun skal fara fram eigi sjaldnar en annan hvern mánuð.

V. KAFLI Lagning veitukerfa, viðhald o.fl.

18. gr. Veitukerfið.

HHv. lætur leggja og á allar lagnir veitukerfisins. Með veitukerfi er átt við aðveituæðar, stofnæðar, dreifiæðar, götuæðar svo og heimæðar og lagnir innanhúss til og með stofnkrana, vatnsmæli eða hemli enda er skylt að þeir séu á inntaki, sbr. 22. gr. um inntaksrými.

19. gr. Heimæðar.

Sækja skal um lagningu heimæða til HHv. á þar til gerðu eyðublaði þegar framkvæmdir hefjast á lóð. Umsóknin skal undirrituð af eiganda hússins eða fullgildum umboðsmanni hans ásamt pípulagningameistara þeim sem verkið á að annast. Mælagrind hitaveitu er sett upp þegar heimæðargjald hefur verið greitt.

Umsókn skulu fylgja viðeigandi teikningar samþykktar af byggingaryfirvöldum í Húnaþingi vestra og skal á þeim gerð grein fyrir afstöðu húss/mannvirkis og væntanlegum inntaksstað fyrir heitt vatn. Hönnuðir skulu hafa samráð við HHv. um væntanlega legu lagna á lóð og gera grein fyrir þeim á teikningum.

HHv. er heimilt að leggja heimæð eða sameiginlega heimæð um lóð, og húseigandi skal sjá fyrir inntaksstað fyrir heitt vatn við útvegg kjallara eða fyrstu hæðar ef húsið er kjallaralaust, ásamt nauðsynlegu rými fyrir mælagrind og annað tilheyrandi tengingu við veituna.

HHv. ber ekki skylda til að leggja heimæðar meðan frost er í jörðu eða á tímabilinu frá 1. október til 1. júní nema greiðsla á áföllnum aukakostnaði komi til.

20. gr. Um lagningu heimæða og gerð inntaksrýmis.

Við hönnun húsa skal gera ráð fyrir og staðsetja á uppdrætti rými fyrir stofnloka heimæðarmæli eða hemil og annan búnað í eigu HHv. Inntaksrými skal uppfylla ákvæði byggingarreglugerðar. Tengja skal öryggisloka hitakerfis við frárennslislagnir. Inntaksrými skal vera aðgengilegt starfsmönnun HHv.

HHv. annast lagningu eigin veitukerfis og tengingu við húsveitur. Þó skal húseigandi/húsbyggjandi koma fyrir inntaksvinklum og/eða ídráttarinntaksbeygjum í samráði við HHv.

HHv. ákveður hvort lagt er einfalt eða tvöfalt (framrásar- og bakrásarkerfi) kerfi að húsi. Við framkvæmdir skal HHv. halda raski í lágmarki og ganga þrifalega um. Jafnframt skal HHv. færa allt til fyrra horfs, eftir því sem við verður komið.

Húseigandi á ekki kröfu til sérstakrar greiðslu vegna lagningar veitukerfa HHv.

21. gr. Kostnaður við tengingu.

HHv. kostar lagningu eigin veitukerfis, en húseigandi greiðir heimæðargjald samkvæmt gjaldskrá, fyrir hverja heimæð með mæli eða hemli.

22. gr. Kostnaður við breytingar.

Kostnað við breytingar á húsveitu eða hitunarkerfi húss vegna tengingar við hitaveituna skal húseigandi greiða.

Húseigandi greiðir breytingar á heimæðum sem nauðsynlegar eru vegna framkvæmda hans.

Húseigandi skal fyrirfram sækja um leyfi til hverra þeirra framkvæmda, sem kunna að hafa í för með sér röskun á veitukerfi HHv.

23. gr. Upphaf notkunar.

Engir aðrir en umboðsmenn HHv. mega hleypa vatni úr kerfi veitunnar á hitakerfi húsa í fyrsta sinn eftir tengingu. Pípulagningameistari skal annast prófun hitalagna í samráði við byggingarfulltrúa sem sér um úttekt kerfisins og vera viðstaddur þegar vatni er hleypt á hitakerfið.

24. gr. Aðgangur að veitukerfi, lögnum o.fl.

HHv. hefur rétt til aðgangs að húsnæði því, sem tengt er veitukerfi hennar, til viðhalds, eftirlits og breytinga.

Í þeim undantekningartilfellum, þar sem inntak hitaveitu og mælagrind eru ekki í sama herbergi, skal lögn þar á milli vera óhulin eða í stokk sem auðvelt er að opna, og ber húseigandi ábyrgð á tjóni er leki á slíkri millilögn kann að valda.

Óheimilt er að hylja mælagrind á þann hátt að það valdi erfiðleikum við viðhald og viðgerðir og eigi má setja hillur eða annað ofan við mæli þannig að það hindri eðlilegan aflestur, og getur HHv. krafist úrbóta sé frágangur umhverfis mælagrind ekki í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar. HHv. getur lagfært slíka ágalla á kostnað húseiganda verði dráttur á úrbótum, sbr. 30. gr.

25. gr. Viðhald heimæða.

Við viðhald heimæðar skulu starfsmenn HHv. halda raski í lágmarki og ganga snyrtilega um. Sé nauðsynlegt vegna bilunar eða endurnýjunar á heimæð að grafa upp heimæðina er starfsmönnum veitunnar það heimilt, en færa skulu þeir lóð til fyrra horfs eins og unnt er.

Starfsmönnum HHv. er heimilt vegna endurnýjunar heimæðar að leggja hana á öðrum stað frá dreifiæð í hús, telji þeir það heppilegra til að forðast skemmdir. Enn fremur er starfsmönnum heimilt að höfðu samráði við húseiganda, að fara með heimæð inn í hús á öðrum stað, ef ekki er unnt að nota þann stað sem fyrir er, nema valda miklu og/eða óbætanlegu tjóni. Hafi húseigandi gróðursett trjáplöntur, steypt veggi, stéttar, bifreiðastæðieða annað sambærilegtyfir heimæð, eða lagt yfir hana snjóbræðslukerfi, ber HHv. ekki ábyrgð á því tjóni sem kann að verða vegna nauðsynlegra aðgerða veitunnar, nema tjónið verði rakið til gáleysis starfsmanna hennar.

Eigandi fasteignar á ekki kröfu á sérstakri greiðslu fyrir óþægindi vegna viðhalds eða endurnýjunar heimæðar.

VI. KAFLI Innheimta vanskila, viðurlög við brotum o.fl.

26. gr. Um stöðvun vatnsafhendingar vegna vanskila.

HHv. hefur rétt til að stöðva afhendingu á heitu vatni til kaupanda sem greiðir ekki áætlunar- eða álestrarreikning eða vanrækir skyldur sínar samkvæmt reglugerð þessari.

Til slíkra aðgerða má þó fyrst grípa að undangenginni skriflegri aðvörun sem sendist kaupanda með fimm daga fyrirvara. HHv. ber ekki ábyrgð á hugsanlegum afleiðingum slíkrar lokunar.

HHv. hefur rétt til að krefja kaupanda um greiðslu gjalds samkvæmt gjaldskrá hafi komið til stöðvunar vatnsafhendingar af ástæðum sem um getur í 1. mgr. Heimilt er HHv. að krefjast greiðslu þessarar áður en heitavatnsafhending er hafin á ný. Þó ekki komi til stöðvunar á afhendingu á heitu vatni er HHv. heimilt að krefja kaupanda um gjald vegna undirbúnings að stöðvun. Fastagjald/mælaleiga greiðist þó vatnsafhending hafi verið stöðvuð.

27. gr. Innsigli, ólögmæt notkun o.fl.

Starfsmenn HHv. innsigla hemla og vatnsmæla, svo og annan þann inntaksbúnað í eigu HHv., er þurfa þykir. Þessi innsigli mega engir aðrir en starfsmenn HHv. rjúfa. Ef rofið er innsigli á búnaði HHv. varðar það refsingu samkvæmt almennum hegningarlögum, sama á við um ólögmæta vatnsnotkun.

Ef skjótra aðgerða er þörf vegna hættuástands er heimilt að rjúfa innsigli en þá skal viðkomandi strax tilkynna HHv. um atvikið (neyðartilvik).

Húseigandi ber ábyrgð á meðferð búnaðar og lagna innanhúss sem eru í eigu HHv. og greiðir hann kostnað við viðgerð eða endurnýjun búnaðar sem verður fyrir skemmdum af hans völdum eða þeirra aðila sem hann ber ábyrgð á.

Húseiganda/kaupanda ber tafarlaust að tilkynna, til HHv., ef vart verður bilunar á búnaði og tækjum veitunnar.

Enginn má af- eða endurtengja hitaveituna nema þeir sem HHv. hefir veitt umboð til þess. Sé húsveita tengd heitavatnskerfi HHv. í heimildarleysi, getur HHv. aftengt húsveituna fyrirvaralaust. Fara skal með slíkt brot sem ólögmæta vatnsnotkun.

Verði uppvíst að vatn hafi verið notað á annan hátt en um er samið, að raskað hafi verið mælitækjum eða tengingum breytt þannig að ekki komi fram öll notkun, skal HHv. áætla það vatnsmagn sem notað hefur verið með ólögmætum hætti og innheimta sérstaklega.

28. gr. Vanræksla.

Vanræki húseigandi að vinna verk, sem honum ber samkvæmt reglugerð þessari að framkvæma, eða sé verk ekki unnið á viðunandi hátt, er HHv. heimilt að láta vinna það á hans kostnað, hafi hann ekki orðið við tilmælum um að vinna verkið innan tiltekins frests.

29. gr. Aðför - fjárnám.

Öll gjöld vegna heits vatns þ.m.t. heimæðargjald samkvæmt reglugerð þessari og gjaldskrá má innheimta með fjárnámi, skv. 10. tl. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 90/1989 um aðför, og 79. gr. orkulaga nr. 58/1967, með síðari breytingum.

30. gr. Viðurlög.

Brot á reglugerð þessari varða sektum, nema þyngri refsing liggi við samkvæmt lögum. Með mál út af brotum á reglugerð þessari skal farið að hætti opinberra mála.

31. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi sem samin er og samþykkt af sveitarstjórn Húnaþings vestra þann 22. nóvember 2012 staðfestist hér með samkvæmt orkulögum nr. 58/1967 með síðari breytingum til að taka gildi þegar í stað og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld reglugerð fyrir Hitaveitu Húnaþings vestra, nr. 63/2001 með síðari breytingum og reglugerð fyrir Hitaveitu Bæjarhrepps nr. 1090/2011.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 19. desember 2012.

F. h. r.

Kristján Skarphéðinsson.

Erla Sigríður Gestsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.