Fara beint í efnið

Prentað þann 28. mars 2024

Stofnreglugerð

1272/2012

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 906/2009 frá 28. september 2009 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum samninga, ákvarðana og samstilltra aðgerða milli áætlunarskipafélaga (skipafélagasamtaka).

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 51/2010 frá 30. apríl 2010 gildir eftirtalin EB-gerð hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð ráðsins nr. 906/2009 frá 28. september 2009 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum samninga, ákvarðana og samstilltra aðgerða milli áætlunarskipafélaga (skipafélagasamtaka).

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 906/2009 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 5/2011, 27. janúar 2011, bls. 71.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 51/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 37/2010, 15. júlí 2010, bls. 25.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.

Með reglugerð þessari fellur úr gildi reglugerð nr. 818/2006 um um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 823/2000 frá 19. apríl 2000 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum samninga, ákvarðana og samstilltra aðgerða milli áætlunarskipafélaga (skipafélagasamtaka).

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. desember 2012.

F. h. r.

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

Sigurbjörg Stella Guðmundsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.