Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

1273/2012

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 461/2010 frá 27. mars 2010 um beitingu 3. mgr. 101. gr. sáttmálans um framkvæmd Evrópusambandsins gagnvart flokkum lóðréttra samninga og samstilltra aðgerða á sviði vélknúinna ökutækja.

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2010 frá 2. júlí 2010 gildir eftirtalin ESB-gerð hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnar (ESB) nr. 461/2010 frá 27. mars 2010 um beitingu samkeppnisreglna á sviði flutninga á járnbrautum, vegum og skipgengum vatnaleiðum.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 461/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 54/2012, dags. 27. september 2012, bls. 63.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 91/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 59/2010, 21. október 2010, bls. 13.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.

Með reglugerð þessari fellur úr gildi reglugerð nr. 823/2006 um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 1400/2002 frá 31. júlí 2002 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart tilteknum flokkum lóðréttra samninga og samstilltra aðgerða á sviði vélknúinna ökutækja.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. desember 2012.

F. h. r.

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

Sigurbjörg Stella Guðmundsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.