Fara beint í efnið

Prentað þann 29. mars 2024

Stofnreglugerð

1275/2012

Reglugerð um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1218/2010 frá 14. desember 2010 um beitingu 3. mgr. 101. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins gagnvart tilteknum flokkum samninga um sérhæfingu.

1. gr.

Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 3/2011 frá 11. febrúar 2011 gildir eftirtalin ESB-gerð hér á landi með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XIV. viðauka við EES-samninginn um samkeppni, bókun I um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1218/2010 frá 14. desember 2010 um beitingu 3. mgr. 101. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins gagnvart tilteknum flokkum samninga um sérhæfingu.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 1218/2010 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 40/2011, 14. júlí 2011, bls. 105.

Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 3/2011 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi EB nr. 19/2011, 7. apríl 2011, bls. 7.

3. gr.

Reglugerð þessi, sem er sett samkvæmt heimild í 32. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, öðlast þegar gildi.

Með reglugerð þessari fellur úr gildi reglugerð nr. 820/2006 um innleiðingu reglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 2658/2000 frá 29. nóvember 2000 um beitingu 3. mgr. 81. gr. sáttmálans gagnvart flokkum samninga um sérhæfingu.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 20. desember 2012.

F. h. r.

Valgerður Rún Benediktsdóttir.

Sigurbjörg Stella Guðmundsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.