Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

1044/2012

Reglugerð um bann við línuveiðum á norðanverðum Faxaflóa. - Brottfallin

1. gr.

Frá og með 15. október til og með 15. janúar eru allar línuveiðar bannaðar á svæði í norðanverðum Faxaflóa, sem markast af línu, sem dregin er milli eftirgreindra punkta:

  1. 64°45,20´N - 23°38,10´V
  2. 64°49,00´N - 23°33,50´V
  3. 64°47,50´N - 22°45,60´V
  4. 64°46,20´N - 22°24,00´V
  5. 64°32,30´N - 22°26,40´V
  6. 64°40,60´N - 22°51,50´V

2. gr.

Brot á ákvæðum reglugerðar þessarar varða viðurlögum samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum. Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra mála.

3. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands með síðari breytingum til þess að öðlast gildi frá og með 8. desember 2012.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. desember 2012.

F. h. r.

Hrefna Karlsdóttir.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica