Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti

845/2012

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð nr. 1051. 28. desember 2009, um veiðar á sæbjúgum. - Brottfallin

1. gr.

4. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Á hrygningatíma sæbjúgna eru veiðar óheimilar, sem hér segir:

  1. Svæði A: frá 1. maí til og með 30. júní,
  2. Svæði B: frá 1. júní til og með 31. júlí,
  3. Svæði C: frá 1. júní til og með 31. júlí.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 79/1997 um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, og lögum nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 4. október 2012.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica