Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 29. mars 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 1. jan. 2013

848/2012

Reglugerð um innflutning dýraafurða til einkaneyslu.

Birta efnisyfirlit

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 133/2007 frá 1. maí 2010 öðlast eftirfarandi EB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 745/2004 um ráðstafanir varðandi innflutning afurða úr dýraríkinu til einkaneyslu.

2. gr.

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EB) nr. 745/2004 er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 68 frá 15. desember 2011, bls. 485.

3. gr.

Um innflutning dýraafurða fer samkvæmt lögum nr. 93/1995 um matvæli, lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, sbr. 10. gr. þeirra laga, reglugerð nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins og öðrum stjórnvaldsfyrirmælum settum skv. þeim lögum. Lög nr. 25/1993 og stjórnvaldsfyrirmæli sett samkvæmt þeim setja viðbótarskilyrði vegna innflutnings tiltekinna dýraafurða sem reglugerð þessi nær til.

4. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

5. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer skv. XI. kafla laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum, lögum nr. 54/1990 um innflutning dýra, með síðari breytingum og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, með síðari breytingum.

6. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum, lögum nr. 55/1998 um sjávarafurðir, með síðari breytingum og lögum nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim. Reglugerðin öðlast gildi 1. janúar 2013.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.