Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

663/2012

Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 329/2012, um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2012. - Brottfallin

1. gr.

1. tl. 1. mgr. 4. gr. orðist svo:

Heimilt er að flytja aflaheimildir milli skipa sem falla undir 3.-4. tl. 1. mgr. 2. gr. ef þau eru í eigu sömu útgerðar og í sama flokki. Einnig er heimilt að færa aflaheimildir skipa sem falla undir 4. tl. 1. mgr. 2. gr. til skipa sem sem falla undir 2. og 3. tl. 1. mgr. 2. gr. og heimilt er að að færa aflaheimildir skipa sem falla undir 3. tl. 1. mgr. 2. gr. til skipa sem sem falla undir 2. tl. 1. mgr. 2. gr. enda séu viðkomandi skip í eigu sömu útgerðar. Þá er heimilt að flytja aflaheimildir á milli skipa sem falla undir 2. tl. 1. mgr. 2. gr. sem eru í eigu sömu útgerðar strax eftir að þau hafa veitt 50% af aflaheimildum sínum.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, laga nr. 79, 26. maí 1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, með síðari breytingum og laga nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 24. júlí 2012.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Kristján Freyr Helgason.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica