Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

702/2012

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1093/2011, um ráðstöfun aflaheimilda í skötusel á fiskveiðiárinu 2011/2012. - Brottfallin

1. gr.

Við 3. gr. bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

Heimilt er að flytja allt að 15% af aflaheimildum sem úthlutað hefur verið af skötusel á fiskveiðiárinu 2011/2012, með heimild í þessari reglugerð sbr. einnig reglugerð nr. 847/2011, yfir á fiskveiðiárið 2012/2013.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, og öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 10. ágúst 2012.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica