Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

325/2012

Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 1221, 23. desember 2008, um veiðieftirlit á samningssvæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC). - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði til bráðabirgða orðist svo:

Skipum sem fengið hafa sérstakt leyfi til djúpsjávarveiða með botnfiskveiðarfærum er heimilt til 31. ágúst 2012, að veiða eftirfarandi fisktegundir, að hámarki, miðað við óslægðan fisk, sem hér segir:

1.

Blálöngu

37.668 kg

2.

Grálúðu

33.881 kg

3.

Keilu

23.320 kg

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt lögum nr. 151, 27. desember 1996, um fiskveiðar utan lögsögu Íslands, með síðari breytingum og lögum nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum til þess að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 326, 29. mars 2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 3. apríl 2012.

F. h. r.

Hrefna Karlsdóttir.

Arnór Snæbjörnsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica