Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

346/2012

Reglugerð um framkvæmd tilskipunar ráðsins 2006/88/EB að því er varðar ráðstafanir til að hamla gegn aukinni dánartíðni hjá ostrum af tegundinni Crassostrea gigas. - Brottfallin

1. gr.

Ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið sem vísað er til í I. kafla, I. viðauka, skulu öðlast gildi með breytingum og viðbótum sem leiðir af I. viðauka, bókun 1 við samninginn og öðrum ákvæðum hans. Á grundvelli ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 61/2011 frá 2. júlí 2011 öðlast eftirfarandi ESB-gerð gildi hér á landi:

Reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 175/2010 um framkvæmd tilskipunar ráðsins 2006/88/EB að því er varðar ráðstafanir til að hamla gegn aukinni dánartíðni hjá ostrum af tegundinni Crassostrea gigas í tengslum við greiningu herpesveiru 1 ÿvar í ostrum (OsHV-1 ÿvar). Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 59, frá 27. október 2011, bls. 513.

2. gr.

Matvælastofnun fer með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við lög nr. 93/1995, um matvæli, lög nr. 55/1998, um sjávarafurðir, lög nr. 71/2008, um fiskeldi, lög nr. 54/1990, um innflutning dýra, lög nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lög nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum, nema annað sé ákveðið samkvæmt lögum eða stjórnvaldsfyrirmælum. Til starfrækslu fiskeldisstöðva þarf rekstrarleyfi sem Fiskistofa veitir skv. III. kafla laga nr. 71/2008, um fiskeldi.

3. gr.

Brot gegn reglugerð þessari varðar sektum eða fangelsi. Um þvingunarúrræði og viðurlög vísast til laga nr. 93/1995, um matvæli, laga nr. 55/1998, um sjávarafurðir, laga nr. 71/2008, um fiskeldi, laga nr. 54/1990, um innflutning dýra, laga nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og laga nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 55/1998, um sjávarafurðir, lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og lögum nr. 60/2006, um varnir gegn fisksjúkdómum. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 13. apríl 2012.

F. h. r.

Sigurgeir Þorgeirsson.

Baldur P. Erlingsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica