Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

630/2011

Reglugerð um ráðstöfun aflaheimilda í skötusel á fiskveiðiárinu 2010/2011. - Brottfallin

1. gr.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun aflaheimilda í skötusel samkvæmt ákvæði I til bráða­birgða í lögum nr. 22/2010, um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.

2. gr.

Úthluta skal allt að 250 lestum af skötusel á fiskveiðiárinu 2010/2011 frá og með 28. júní 2011.

Heimilt er að úthluta á skip allt að 5 lestum í senn gegn greiðslu gjalds enda hafi við­komandi skip leyfi til veiða í atvinnuskyni. Þó er skilyrði að skip, sem hefur framselt afla­mark sitt í skötusel sem úthlutað var á grundvelli aflahlutdeildar, hafi a.m.k. aflamark í skötusel sem nemur því magni sem skipinu er úthlutað á grundvelli reglugerðar þessarar, enda hafi framsal aflamarks átt sér stað eftir gildistöku reglugerðar þessarar.

3. gr.

Fiskistofa skal auglýsa eftir umsóknum um úthlutun aflaheimilda í skötusel.

Fiskistofa annast úthlutun aflaheimilda á grundvelli umsókna sem borist hafa Fiskistofu eigi síðar en 14. júlí 2011. Ef umsóknir um aflaheimildir eru umfram þær aflaheimildir sem til ráðstöfunar eru skal Fiskistofa skipta því sem til ráðstöfunar er jafnt á milli umsækjenda, enda hafi umsækjandi ekki sótt um minna magn en því nemur.

Verð á aflaheimildum skötusels er 120 kr. hvert kg og skal það greitt Fiskistofu fyrir úthlutun. Hafi gjald ekki verið greitt í síðasta lagi 27. júlí 2011 fellur réttur útgerðar til úthlutunar á grundvelli umsóknarinnar niður og skiptast aflaheimildirnar á önnur skip enda hafi úthlutun þeirra ekki numið 5 lestum. Komi til aukinnar úthlutunar hafa útgerðir 7 daga frá dagsetningu tilkynningar Fiskistofu þar að lútandi til að greiða gjald vegna þeirrar úthlutunar.

4. gr.

Framsal aflaheimilda sem úthlutað er samkvæmt reglugerð þessari er óheimilt. Afla­heimildum í skötusel samkvæmt reglugerð þessari skal haldið aðgreindum frá afla­heimildum sem úthlutað er í skötusel á grundvelli aflahlutdeildar við aflaskráningu og skal skipstjóri við löndun afla gefa hafnarvigtarmanni upplýsingar um aflann.

Hafi skip, við úthlutun samkvæmt reglugerð þessari, veitt umfram aflaheimildir þess skulu aflaheimildir sem úthlutað er koma á móti þeim umframafla skips í skötusel sem til staðar er þegar önnur úrræði laga vegna umframafla skips hafa verið fullnýtt.

Útgerð sem kaupir aflaheimildir á skip sitt á grundvelli reglugerðar þessarar er óheimilt að flytja frá viðkomandi skipi aflamark í skötusel sem úthlutað hefur verið á grundvelli aflahlutdeildar sem nemur þeim aflaheimildum sem keyptar voru.

5. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og birtist til eftirbreytni öllum þeim sem hlut eiga að máli. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 470 6. maí 2011, um ráðstöfun aflaheimilda í skötusel á fiskveiðiárinu 2010/2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 28. júní 2011.

F. h. r.

Jóhann Guðmundsson.

Þórhallur Ottesen.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica