Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti

737/2011

Reglugerð um sérstaka úthlutun til skel- og rækjubáta skv. 1. tl. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða. - Brottfallin

1. gr.

Þar sem takmarkaðar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar á Arnarfirði og engar innfjarðarækjuveiðar voru stundaðar í Ísafjarðardjúpi, Húnaflóa, Skagafirði, Skjálfandaflóa, Öxarfirði, Eldeyjarsvæði og Norðurfjörðum Breiðafjarðar á fiskveiðiárinu 2010/2011, skal á fiskveiðiárinu 2011/2012 úthluta aflamarki allt að 1.038 þorskígildislestum. Þó skal upphafsúthlutun nema allt að 50% af heildaruppbótum til báta, sem hafa hlutdeild í innfjarðarækju á áðurgreindum svæðum.

Í hlut báta frá Arnarfirði koma 67 þorskígildislestir, 369 þorskígildislestir í hlut báta við Ísafjarðardjúp, 146 þorskígildislestir í hlut báta við Húnaflóa, 151 þorskígildislestir í hlut báta við Skagafjörð, 69 þorskígildislestir í hlut báta við Skjálfandaflóa, 199 þorskígildislestir í hlut báta við Öxarfjörð, 23 þorskígildislestir í hlut báta á Eldeyjarsvæði og 14 þorskígildislestir í hlut báts í Norðurfjörðum Breiðafjarðar.

2. gr.

Þar sem engar hörpudisksveiðar eru stundaðar í Arnarfirði, Húnaflóa, Breiðafirði og Hvalfirði, skal á fiskveiðiárinu 2011/2012 úthluta aflamarki allt að 972 þorskígildislestum til báta. Þá skal upphafsúthlutun nema allt að 50% af heildarúthlutun til báta sem aflahlutdeild hafa í hörpudiski á áðurgreindum svæðum.

Í hlut báta frá Arnarfirði koma 7 þorskígildislestir, 32 þorskígildislestir í hlut báta við Húnaflóa, 909 þorskígildislestir í hlut báta við Breiðafjörð og 24 þorskígildislestir í hlut báta við Hvalfjörð.

3. gr.

Úthluta skal uppbótum til einstakra báta á grundvelli þeirrar aflahlutdeildar sem þeir hafa í rækju og skel á viðkomandi svæði og miðast við aflahlutdeild eins og hún er 1. ágúst 2011. Uppbæturnar skulu skiptast á eftirgreindar tegundir: Þorsk, ýsu, ufsa og steinbít, í hlutfalli við leyfilegt heildarmagn í þessum tegundum.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 3. mgr. 10. gr. laga nr. 116, 10. ágúst 2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum, til að öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. september 2011.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, 20. júlí 2011.

 

Jón Bjarnason.

Indriði B. Ármannsson.


Þetta vefsvæði byggir á Eplica